verð bara að segja
að mér líst ekki á blikuna í heims og landsmálum í dag. það er einhverdjöfulsins AMERIKAH komin útum allan hinn verstræna heim, sem er uppfullur af óheiðarlegum mönnum sem hafa lagt af siði landsins og láta öllum illum látum með mútum, stríði, lygum, peningagræðgi, og hatri, kúgunin er allstaðar.
ekki er það nóg að þetta fólk hefur tekið yfir hinn vestræna heim, heldur líka hinn austræna. það er hvergi lengur fólk sem lifir í sátt við náttúruna og aðra menn.
kannski í Amazon.. veidikki. það á að ryðja Kristíaníu sem er jú sorglegt. Það á að sprengja Írak, sem er jú sorglegt. það er kúkur í Ganges, sem er jú sorglegt.
Það er smjörkúkur í ríkisstjórninni. Sem er jú sorglegt, það er Britney í útvarpinu, álver á öllu hálendinu, spilling í yfirvöldum, nastistar í austurríki, fáviti í hvítahúsinu, olía í írak og reiði í brjósti mínu.
Það er saklaust fólk á hrauninu, það eru glæpamenn í fyrirtækjum, það eru hálfvitar í umferðinni, mammontottandi fávitar í kirkjunni, svikari í ásatrúarfélaginu, það er jónas í sauðagæru og reiði í brjósti mínu.
Það er smábarn á heróíni, .það er lík í höfninni, það er fönkfasisti í forsetisráðuneitinu og r-listi í borgarstjórn, það er sprautunál á leikskólanum, það er leiðinlegt í vinnuni og reiði í brjósti mínu.
Það eru tónleikar á Hróárskeldu í sumar og ég ætla að mæta.
Og það er gaman.