Tuesday, December 3

Í borginni stóð kofi einn



Í borginni stóð kofi einn,sat við vegginn stónersveinn.
Þá kom lítið skuldaskinn sem vildi komast inn.

Stónersveinn ég treysti á þig,
Handrukkari skýtur mig!
“Komdu litla blanka skinn, því ég er vinur þinn.

bara að spá.. og spégúlera.
En á aðra hönd þá er var ég á sunnudagskvöldið ásamt þessum manni hérna
að taka upp lagið mitt Jarðaði Hana sem verður hægt að nálgast seinna á vefnum, þetta lag er aðeins ein gítarrödd í harmoníupælingum, ég leik á gítar en maðurinn hér að ofan á Jónur..
anywho.. þá er þetta einkar athyglisverður titill á lagi. og mun ég útskýra hann á eftir næstu fyrirsögn.

jarðaði hana


þannig var það í sumar að ég var atvinnulaus, sem er ekki frásögu færandi nema hvað fyrir þá fuckast upp svefnmynstrið mitt, sem þið sem þekkið mig vitið að er ekki uppá marga fiska fyrir. nema hvað að ég vakna þarna klukkan 03:00 um nótt og ákveð að fara í göngutúr um álftanesið til þess að öðlast tilgang og hamingju, finna lífið leika við mig. ég fer út og geng í ca 45 mínútur, þegar ég átta mig á því að ég er í miðju kríugeri... best að labba í hina áttina.og ég labba um ströndina í svona 2 tíma, þar til ég kem að litlu skeri sem heitir kvísker, þar sem flæðir að á 6 tíma fresti, ég ákvað að labba útí skerin þar sem var hálf fjara, nema hvað ég sé á leiðinni drukknaðan fugl mér á vinstri hönd, ég hugsaði með mér "vexlings múkkinn" og labba úti skerin og rölti þar um í smá stund. nema hvað. ég geng til baka og þarf að vaða mig uppað hné í sjó þá tek ég eftir því að fuglinn er hani, sem og ég ákveð að jarða, í einskærri góðmennsku. ég var í einstakri maníu vegna svefnleysis þannig að ég stóð í ströndinni yfir gröf hanans og söng little red rooster, og oh danny boy fyrir hann hástöfum. ég kom hheim blautur, söndugur og þreyttur seint undir morgun og ég féll í svefn eftir að ég orti lítið ljóð sem passaði við tilfinninguna

Jarðaði Hana


Ég þarfnaðist hennar
fór út að finna hana
og ég fann hana
svo varð ég að jarða hana
en hún var hvergi nærri

Monday, December 2

400,000


+100.000


+55.000


=550.000


þessi grein var sponsoruð af viltu vinna milljón

rock and roll