Friday, October 11

Scotland the Brave


við óskum skotlandi góðs gengis á morgun, og þá sérstaklega the tartan army sem eru drengir bjóðir.. góðir og bjóra mann mikið.

áfram skotland



Ég er rödd Guðs


ég hef eimmitt alltaf ímyndað mér rödd guðs gyðinganna sem eihhkva sem svipar til raddar Alans Rickman, hrokafullur enskur hreimur á alveg hreint yndislegri háðungs rddu.. það vil ég vera og geta sagt við yður:
"Sál , Sál, hví ofsækiru mig? erfit reyist þér að spyrna á móti broddunum"
"Saul, Saul, why persecuest thu me? it will be hard for thee to kick against the pricks"
metaron
What Dogma character are you?

brought to you by Quizilla

Thursday, October 10

Messías er yður borinn


ég heyri sögu úr dauðans klefa
Jésú barn í jötu sefar
og í valdi efans
-dó negldur á kross
og ég segi, ef leyfist mér, það virðist passa vel við hér...





ég
er
ekkert
allveg
að fíla það að mér sé í sífellu líkt við krosslaf,
en
hey
þetta
er
bara
svona
greinilega
ég
er
hinn
útvaldi

sem
þið
munuð
biðja
til

Tuesday, October 8

Sælar Minningar.


eða brennandi æskuminning dauðans!!!


sumarið 1990...
litli Slim ekki enn farinn að spila á gítar.. en strax farinn að gera Page, Hendrix og Slash, að átrúnaðargoðum.
3 vinir að leika sér á heimili bræðranna, Slim (9) og Davíðs (11), 3ðji vinurinn var svo Kári, sem núna er lögreglumaður í Kópavogi (hvernig hann leiddist útá þá ógæfubraut veit ég ekki) leikurinn er sem svo oft áður hjá 9 og 11 ára strákum að kveikja í einhverju....
leitað er í bílskúr sem er undir heimili bræðranna að einhverju til þess að kveikja í steinum og pollum. einhvernvegin rataði ég,Slim, á það snilldar ráð að kveikja í sellulósaþynni...
sem ég og hellti útí poll sem var á bílaplaninu fyrir utan.
logarnir fallegir teygðu sig upp til skýjanna í reykjarmekki þar sem þeir brunnu á vatninu. meðal rauðgrýtisins á planinu.
en snillingurinn hann bróðir minn fékk þá snilldar hugmynd að skella smá terpentínu á bálið til að gera þetta krassandi...
og jú... hann hellir terpentínu úr 5 lítra brúsa, beint yfir pollinum.
Enginn sem þekkir eðli terpentínu þarf að spurja um hvað gerðist.
logarnir leiddu í brúsann sem sprakk og kviknaði í jakka bróðurins. bálið var stjórnlaust og löggan unga hló.
ég fló inn í íbúð og sótti þar slökkvitæki sem ég hljóp aftur út með og nánast tæmdi á umhverfi mitt. hvít tré, hvítt rauðgrýti, hvítt vatn og hvítur Davíð, löggustrákurinn Kári eldrauður af hláturskasti.
nema hvað... við ákváð þrífa og að engin mætti komast að þessu... svo við hlupum í bílskúrinn og ég smúlaði allt í burtu, bróðir minn hljóp með brunarústir jakkans útí móa og við gerðum okkar besta til þess að fela allt... brúsinn falinn... pollurinn tæmdur.. allt.
í .þá mund keyrði Slökkviliðið framhjá og horfði mjög grunsamlega á okkur þar sem við stóðum grunsamlegir í slökkvidufti sem náði okkur upp að ökkla...
sn allt kom fyrir ekki.
BabúBabú keyrði framhjá án þess að gera neitt og við sluppum með skrekkinn. ég hef ekki ennþá sagt mömmu og pabba söguna nú einum 12 árum síðar.. en við erum búin að skipta um slökkvitæki.
en mikið var nú gaman að vera lítill og vitlaus.
:)

Sunday, October 6

Ævintýrafreð til Helfoss


eða Smack my bitch up


eða Fear and Loathing in Las Helfoss


eða Er ég kem heim í Hnakkadal


Já.. fór í gær ásamt hljómsveitinni Smack á Selfoss... Ingvar litli tónabúðingur bauð mér að kíkja með...
ég gæti sagt ykkur sögur... ó vá... en þá þyrfti ég að drepa ykkur!!!
AHAHAHAHAHAHAHA!HAHAHAHAHAHA HAHAHAHAHHA (manískur hlátur) AHAHAAHAHAHAHA AHAHAHAHAHAHA
heehh....phew!

jæja aðrar fréttir...


Fór í dag á "ódýra hljómplötumarkaðinn" í perlunni....
það var frekar súrrealísk upplifun, ég hitti hina íðilfögru yngismey Söruh Black sem einnig er þekkt sem Halla... gaman að hitta hana aftur
eh.. já um markaðinn. þetta var verulega bizzarre staður... tildæmis var diskur með Muddy Waters undir skilti sem stóð á "Írsk tónlist".
þarna var líka skilti sem stóð á "kaupið 5 diska merktir "5 fyrir 1000 krónur" og borgið aðeins 1000 krónur"
hehehehe
ég keypti samt From her to eternity með Nick Cave og The Best of Leonard Cohen.
sem og Fear and loathing in Las Vegas, Pusher (danska myndin muniði?) og Lord of the Rings...
gaman gaman