Thursday, November 21

Ég vona að þið skiljið hvað ég er að fara....


Gullna skó og græna sokka
gafstu mér um árið okkar
Vaglaskóginum í
buxum sumar á vorum vegum
á okkar snærum stúlkur nokkrar
þvottasnúrum stóðu hjá
mér situr hún og stoppar
í sambandi okkar spáir í spilin
Morgunblaðið og mig.
Ég sá þig sitja við borðið bláa
með vaxi lita húsið gráa
sem byggðum við Breiðholti á
mér liggur sú kvöð að skilja
hvað öðrum gengur sem eitthvað
skilja verðbréfum víxlum og því.
Þó engin hafi árshátíðin
haldin verið haustið eftir þetta
og svo mig nagað hafi kvíðinn
að ég falli kominn var að detta,
þá kom hún að mér askvaðandi
studdi mig með tangarhaldi.
Með Vísi-tölum við um að selja
braggann gráa og mublur smáar
í Háaleitið flytja svo
við getum sofið saman
áhyggjulausum rekkjuvoðum
í alsnægtum lifað í sátt.

Tuesday, November 19

IÐRIST!!!


ég verð eiginlega að útskýra fyrir ykkur öllum hérna.. að ég er frelsari ykkar í dulargerfi og ég hef ákveðið að sýna mitt rétta andlit.







Im memoriam


James Coburn 1928-2002


James Coburn leikari er látinn, og þar með hverfur ein stærsta stofnun machosins í heiminum. "Cool" allt frá upphafi til endaloka, Coburn var leikarinn sem menn hugsuðu til þegar hlutverk töffarans með byssubeltið kom í hugann. Aldrei eins væminn og Roy Rogers, aldrei eins feitur og John Wayne, aldrei eins mikill fyrrverandi bæjarstjóri og Clint Eastwood og alldrei eins drukkinn og Lee Marvin, Alltaf Flint, Alltaf Flottur, Alltaf Coburn.

Við Kveðjum fallna hetju.