jæja... núner þetta bara alltsaman búið
Nú er helgin vist búin og því er ég orðinn, eins og ég var búnað lofta mér, tímabundið edrú og elskaður....
vegna þess að ég er að fara að taka upp plötu eins og ætti ekki að hafa farið framhjá ykkur elsku litlu lesendakútunum mínum...
málið er að ég er nottla bara bæjarstarfsmaður, flórmokari í skóla fyrir fatlaða krakka, og eins og hvers sem heyrt getur veit eru launin ekki upp í nös á ketti... en eins og það er þá er nottla dýrt að taka upp.. ég er að fara að redda mér á ódýrasta hátt (eins gott að ég á vini...) en það er samt sem áður kostnaður við diskinn sjálfan, það er óupptekna diska, og umslagsprentun, sem og nottla merkingu á sjálfa diskana.. þetta veltur á kannski svona nokkrum tugum þúsunda... en skiptir ekki máli...
mig langar að gera diskinn og það er ekkert nema bara gaman að taka upp svona dót.... þið vitið öll hver jólagjöfin er í ár....
diskurinn (þetta er bara working titill)
The Great Urban Decay and Rural Tragedy
með Slim Jimy(feat GGS8N,)
endilega kaupið diskinn minn eða ég hef ekki efni á að borga meðlögin, það er með lögunum mínum...

