Friday, December 13

merkilegt nokk.


ég er alveg orðinn dauðþreyttur á tilverunni, þetta er bara orðið leiðilegt, því að þetta er bara bull. Ég nenni varla að vakna lengur, en ég er samt að lesa bók sem heitir

How to be happy though human


sem er alveg að hjálpa mér, en ég er samt ekki að sjá, það hvað ég get gefið samfélaginu, eða hvort að safélagið verðskuldi neitt þegar það gerir svona við litlu sætu dýrin, ég er engin græmetisæta og dýraverndunarsinni, en ég ber virðingu fyrir dýrum, þetta er afleiðing stórra fyrirtækja, þetta er afleiðing heimsvæðingar og gróðahyggju, þetta er ógeðslegt. Og ég veit ekki hvað ég get hefið heimi sem lætur þetta viðgangast, við getum borið virðingu fyrir lífríkinu í kringum okkur, lifað í sátt og samlyndi við dýr og menn, og líka borðað kjöt.
Ég mun aldrei gerast grænmetisæta, en svona má ekki viðgangast


If I were a package in Debian GNU/Linux, my package name would be:

doc-sjb-info-es

What's yours?




Wednesday, December 11

ÓGESSLA GAMAN



eða: hann tók í höndiná mér, heilsaði mér, sagði, komdu sæll og blessaður


Ég var á Nick Cave í gær, hann tók nóta bene, í höndina á mér (who wants to touch me? who wants to touch me?), og það var ógeðslega skemmtilegt, sem og það að ég hitti ALLA, tja, eða svo að segja. Tónleikarnir hófust á hinni hæfieikaríku Heru sem var studd af Gumma Pé statista, sem stóð bara þarna og var góður. Þegar Nick steig á svið ætlaði Broadway að rifna, ég vildi ekki hafa verið með herbegi á hótel íslandi í gærkvöld, ég hefði ekki getað sofnað, orkan var svo geðveik. Fiðluleikari Bad Seeds, Warren Ellis fór hamförum á yfirdrifinni fiðlu sem ætlaði að láta mig missa þarmastjórn. Æðislegt, ég mun aldrei verða samur.
Ég stökk á það stig að öskra á manninn

ICELAND LOVES YOU CAVE!!!



Eins og ég sagði þá hitti ég alla í gær, Gretu Hnetu, sem er gegt klár og mysterious, en vill ekki taka staðreyndir fram á blogginu sínu, einig var með mér Steinþór frændi, Gunni Húsgagn, og Dúa var að vinna þaddna, en Mummi kokkur týndist og hékk bara baksviðs, the bastard, og svo var þarna mín fyrrverandi, hún Kolbrún, og svo var þarna Símon spanjóli, og svo var þarna Þórunn og líka Berti frændi og Árni Hamar og Patti leprechaun og Guðni. Sunna Manson birtist eins og skrattinn úr sauðaleggnum ásamt Birtu og Villa og Snorra og Huldu.
Ég, Greta, Steinþór, Gunni og Dúa sátum bara á gólfinu fyrir framan sviðið, þar voru líka fullt af fólki, ég sat fyrir framan Heru, Bubba, Óla-Palla og Andreu Rokk og Íslenska Drauminn Tóta, svo að ég býst við að ég hafi haft góð sæti, Nick var klappaður upp þrisvar og spilaði 3-4 lög í hvert skipti. Cave er guð.

Ég fór í eftirpartí með Gunna, Gretu (Sem er geðveikt klár og mysterious, og Steinþóri og Steini sterki skutlaði mér heim og ég orti um það ljóð við lagið Þá nýfæddur Ésú (enn og aftur er ég með Messíasarduld

Jólaljóð Einars



Þá Hálfdauður Einar í Lödunni lá,
á Jónunum firstu var pínlegt að þjá.
Þá Sveimuðu gellur að Gemsanum hans,
vildu komast í bælið til þess mæta manns.


lifið heil

Tuesday, December 10

í Dag er Dagurinn


eða: hellaskoðun í kvöld


í kvöld fer ég með henni Gretu Hnetu og Árna Hamri, Steinþóri frænda og ógrynni annara að sjá Nick Cave það verður gaman




GAMAN GAMAN


ég hef annars ekkert verið að blogga uppá síðkastið vegna mikillar blaðamennsku á Sánd, þig getið séð það alltsaman í vikunni.