Wednesday, June 12

What a bunch of crap!!


ég hata svona bull en




Take this What High School
Stereotype Are You? crap
anyway, and ooh its by Angel.

NÚ ER NÓG FUCKING KOMIÐ


ég hef alla tíð verið stoltur af því að vera íslenskur, en ég veit ekki hversu mikið lengur ég verð það
maðurinn sem ber ábyrgð á blóðbaðinu á torgi hins "himneska friðar" Jiang Zemin er að koma hingað til lands

Tiananmen, April-June 1989

við bjóðum þarna fjöldamorðingja velkominn í teboð vegna möguleika á viðskiptadílum sem einhverjir andskotans lakkrís, skó og eða fisksalar (sem eru nóta bene að veiða fiska sem allir Íslendingar eiga tilkall til (alltaf að bauna smá á kvótakerfið)) gætu plöggað svo við fengjum að arðræna lítil börn, fátæka sveitadurga og ´sjúka gamlingja, en í staðin færum við að slekja görnina á einhverjum djöfulsins fasista!! Hvað væri sagt ef ég byði Steingrími Njálssyni að flytja inn í húsið mitt útaf því að hann eldar svo vel?...
ég vil ekki að við hérna sem eigum að heita sjálfstæð þjóð endum sem leppir (blóð)Rauða Kína, það er nóg að við erum leppinsport DansBUSH og BNA hérna að neðan.
Það að okkur Íslendingum sé sýnd sú vanvirðing að hálfu kínverskra og íslenskra stjónvalda, að fólki* sé meinaður stjórnarskrárbundinn réttur þeirra, sem að er tilgreindur í Mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, í Genfarsáttmálanum, og að mér skilst einhverstaðar sé klausa um þetta í (B)Eurosáttmálanum
eina spurningarnar sem ég hef í dag fyrir íslensk stjórnvöld eru, er ég og mínar róttæku skoðanir þá næstar? og mun ég þá enda svona?

The Massacre - June 4, 1989


ÉG HVET ALLA TIL ÞESS AÐ TAKA ÞÁTT MEÐ MÉR OG ÖÐRU UNGU FÓLKI Í AÐ BERJAST FYRIR OKKAR EIGIN FRELSI ÁSAM FRELSI ÞESSARA KÍNVERJA ÞVÍ AÐ FRESIÐ ER EKKI ÓKEYPIS OG VIÐ VERÐUM STUNDUM AÐ BERJAST FYRIR ÞVÍ, ÞVÍ ANNARS HÖFUM VIÐ ÞEGAR TAPAÐ!!!!!!!!



*meðlimir í hinni rólindu (ég eyddi öllum deginum í að spjalla við þetta fólk, þetta er ekki hættulegt fólk) Falun Dafa hreyfingu, einnig þekkts sem Falun Gong mega víst ekki koma til landsins né nokkur þessa daganna, sem skrifar ekki undir plagg um það að það muni ekki mótmæla neinu við komunna til landsins ekki einusinni, KómmúNasista eins og hinum illa Jiang Zemin!!!