Saturday, May 25

Got Beer?


já... það er gaman af þessu dóti þegar manni text loksins að laga htmlð hérna....
annars er ég bar þunnur í dag eins og ég lofaði sjálfum mér að verða ekki, en svona er lífið.....
en Dúi (Methúsalem Þórisson) átti komment kosninganna í gær í kosningakastljósinu:

"Ég er Methúsalem, ég vil lengja lífið, og sigra dauðann"

hakan á Boga fréttamanni datt á tærnar á honum og hann sagði ái... Dúi bara brosti
Gaman af því...

Friday, May 24

Á hverjum degi spyr ég mig


afhverju í fjandanum er ég annars að þessu......
og þá kemur upp snilld eins og þessi og zýra eins og þessi kemur og bjargar lífi mínu...
thíhíhí
takk Zato fyrir það að ég stal þessum zýrulink frá þér!!

Wednesday, May 22

Lífið er andskoti furðulegt á stundum... ég er allur laminn og slefaður eftir daginn í kolanámunni, (öskjuhlíðarskóla) þaðan sem ég hef mitt lifibrauð meðan heimsfrægðin lætur á sér standa... börnin lemja mig, kennararnir hata mig, samstafsfólkið þolir mig ekki og ég hata sjálfan mig líka, ss. það er góður mórall í vinnuni....
í nótt, eftir eilitla drykkju, dreymdi mig að ég væri þátttakandi í tölvuskærum á hendur einhverjum andskotanum og stóð mig bara heavy vel, þurftum að klára fyrir vissa sólarstöðu svo ég fór og stal einverstaðar listaverki eftir Einar Jónson, myndhöggvara og notaði sem sólarúr, slóst við Kára stefáns og Árna Johnsen, stal forriti frá íslenskir erfðagreiningu sem gat skapað hvaða lífveru sem var og bjó til úlfhund með tígrisröndum í andhverfu (órange rendur á svörtum feld) og húges sverðtennur, bara af því mig langaði í gæludýr... en hvað sem draumfarahetjudáðum mínun líður þá veit ég hef að ég aldregi verið óskabarn Íslensku þjóðarinnar, né Bandaríkjanna, en núna er ég óskabarn íslams...




You managed to piss off western countries by killing innocent people to get you're hands on oil fields that don't belong to you! That's THEIR job, so a task force was sent to kick you up the backside. They succeeded, but you managed to make them look stupid when it was reviled that the American armed forces had somehow shot down four times as many missiles then you actually owned, and the UK was selling you guns and weapon parts while at war to use against them! So "daddy's little boy" is after you now. Considering what happened the last time, I bet you're SO scared!

What tin-pot dictator are you? Take the "What Dictator am I?" test at PoisonedMinds.com

whoo hoo ég er víst

og með



þeim finnst ég helst samt líkjast

tékkið á Zenhex.com skemmtilegt dót þar

Tuesday, May 21

What the catz dragged in


Það er alltaf skrítið þegar fólk kemur að manni eftir margra ára fjarveru.... hefur samband þegar maður á síst á því von... lífið hefur alltaf einhverjar furðulegar aðferðir til þess að læðast upp að manni eins og samkynhneigður fangi.. og það kemur manni alltaf á óvart...
annars hef ég eiginlega ekkert að segja núna...

Monday, May 20

Jæja og jamm og já....


Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort að lífið þurfi að vera svona leiðinlegt eins og það getur stundum verið....
ég meina, ég var að átta mig á því að ég re kominn á þrítugsaldurinn, sem er kannski ekki það mikið en ég hef ekkert til þess að sýna fyrir það að ég hafi gengið hér á þessari jörð í ein 20, að verða 21 ár... þó svo að ég hafi kannski ekki gengið mikið fyrstu mánuðina... þið fattið nú samt.. er ekki eitthvað meira við lífið?.... er eitthvað til sem við sjáum ekki? er ekki einhver tilgangur í þessu öllu......? ég meina við dettum niður dauð um hvert annað aðra hverja mínútu og segjum að það sé alltílæ, það sé bara partur af lífinu... svo förum við á barinn og slævum allar okkar tilfinningar niður í skítinn og fáum einhverja fróun úr því að detta dauðadrukkin hvert um annað á lélegum dansgólfum sukkstaða bæjarins við einhverja hörmungartónlist, samanber á glaumbar til dæmis, þangað fer fólk til þess að geta bent á næsta mann við hliðina í þrengslunum og segja að það hafi verið hann sem kleip í rassinn á gengilbeinunni, á meðan bornar eru saman sólbrúnkur og sílkonígræðslur.... einhvernveginn sé ég ekki lengur tilgangin í kjötmörkuðunum.... en það er nottla mánu/sunnudagur þannig að hver veit um næstu helgi.... blek í bili

Sunday, May 19

Þynnkan er komin heim!!


ég er ennþá þynnri, en mamma gamla kann að lækna strákinn sinn með því að bjóðamanni í vöfflur... ... ég er ekki viss um djammmagnið sem verður á mér í kvöld en ég er viss um að ég ætla ekki að vera jafn þunnur og í gær.. því að matarboð er yfirleitt ekki skrifað bataróð. annars hef ég verið að velta einu fyrir mér... afhverju þykir sjálfsagt að karlmaður bjóði dömu uppá drykk.. sem er eitthvað sem ég er hlynntur, þó svo að ég fái alltaf "ertu að reyna við mig" svipinn, en konur eiga helst ekki að borga neitt? og ef maður lætur konuna borga þá er maður meiri lúser en sýfilissýktur hreinn sveinn...eð svo virðist vera... og hversvegna er kvenfólk þannig að þegar maður er að reyna við það þá er það grandalaust, en þegar maður er bara að spjalla vor vera næs þá er baður karlremban sem togar í hver einasta pilsfald....

Ég hitti mann í gær, hann gaf skít í mínar útvíður buxur og mitt síða hár og var jafnvel verri við vertíðarVarða (nýja myndin hans kemur úr 29 maí, varði goes to europe (eftir Grím 'GimmaG' Hákonar) ... maður þessi hafi einverja komplexa yfir því að '68 kynslóðin fuckaði upp og í stað þess að færa okkur ´blóm frið og ást færði hún okkur, LSD, heróínóverdós og AIDS? ég meina það er ekki við mig að sakast þó svo að kynslóð foreldra minna hafi klúðrað eftirminnilega.... eða er það? ég meina það er ekki hægt að ráðast á tæplega 21 árs gamlan hippa fyrir það að hafa ekki verið þarna? ég var ekki einu sini orðinn slæm ugmynd... ég meina GAWD! fólk getur verið pirrandi.... en hvað um það

Fyllerý í kvöld!!!!