Tuesday, October 29

Nietszche was almost right!!!



Need I say more?

Monday, October 28

Vikan framundan


ég fæ 5 daga frí8 frá og með Fimmtudeginum JIBBÍ..
þarf að vísu að mæta í skólann á fimmtudeginum, taka þátt í trúbadorkeppni Fimmtudagskvöldið (þið mætið öll og styðjið mig á OBrians) og í partý á flöskudeginum.
þetta verður allveg hel gaman
svo ætla ég að sofa í nokkur ár :D






Sunday, October 27

ái.....hehehe


það er langur afmælisfagnaður í hausnum á mér.


Í gær átti ég 21 árs afmæli, sem er góður hlutur, ég hóf daginn með því að júlla mér á fætor og fara heim.
Nei...
ég fór til Ingvars litla tónabúðings og fór svo á þing ásatrúarmanna og fór svo heim... já kom reyndar við í kolaportinu.
nema hvað.
ég held heim og pakka saman græjunum til þess að fara að taka létt bluesjamm á OBrians ásamt Haraldi hárfagra.
tek þar eftir því að ein snúran sem ég var með, snúra úr preampinum mínum, V-amp, var sambandslaus, ég reddaði mér snúru í gegnum Ingvar og hélt svo uppi setemmingu í smá tíma, þaðan var haldið í partí hjá Rönku og Haffa.. en ég þekkti ekki alla þarna þannig að ég fór á Dillon, en ekki á Thorvaldsen og Vidalin eins og ég hafði ætlað...
því að á Dillon var bókstaflega hellt í mig áfengi. Steinbjór og Hjörtur, Gúndur og fleiri buðu mér uppá drykki, en sérstalega þó hinar íilfögru engilbeinur, Halla og Ósk sem gáfu mér drykki eins og þeim væri borgað fyrir það... þeim var borgað fyrir það... en ég er nottla lítill maður og þrátt fyrir talsvert áfengisþol þá var ég orðinn skrambi vel fullur. og það kom að því sem allir gátu búist við.
ég drapst.
ekki eins og allir aumingjarnir drepast inná klósti eða eitthvað klént, nei, ég drapst fram á barborðið, fallegt.... en..
hátíðarhöldin héldu áfram og ég lá dauður á meðan fólkið söng fyrir mig afmælissönginn þangað til að ég var vakinn af Ingimundi snillingi og ég hélt áleiðis til Rönku og Haffa þar sem ég gisti, nema hvað þegar ég átti svona rétt um 400 metra eftir heim til þeirra þá nennti ég ekki að labba og tók taxa.
svo vaknaði ég í morgun við það að sólin lamdi mig í hausinn. ég hélt þá heim og þá er sagan búin,
nei.
ég á eftir að fá fleiri afmælisgjafir.
GIMME!!
og ég ætla að nota tækifærið og óska öllum

til hamingju með afmælið mitt!