River Man
merkilegt nokk, þá langar mig.
sérstaklega langar mig í bjálkakofa í háum skógi, þar sem veður er hlýtt og ekkert mikið er um umhleypingar, læti rigningu og rok, þar sem dýralíf er auðugt og mikið næði, og engin umferð, læti, en samt má ekki vera lengra en 2-3klst akstur í borgina...
staður þar sem þéttur skógur væri í kring og ég gæti verið eins og þessi maður á myndinni, í friði.
ég gæti setið á veröndinni (þegar ég væri ekki að rölta í gegnum skóginn mér til heilsubótar,) reykt pípu, drukkið gruggið sem ég myndi brugga í bakhúsinu, og spila lög í anda Nick Drake á gamlan kassagítar.



allir væru velkomnir að búa með mér, að þeim skilyrðum settir að þeir væru ekki með of mikil læti, bæru virðingu fyrir náttúrunni og ég gæti treyst þeim.
ef einhver veit um svona stað þá má sá hinn sami/sama benda mér á hann
og hver veit nema við létum þetta rætast




