búnað vera latur... sorrý..
já ég er búnað vera latari og latari með hverjum deginum sem hefur liðið.
Fucking bokkan er búnað taka völdin, enda eru jól, ég ætla þó að láta renna af mér strax eftir áramót. Þetta er nú engin Gullbokka.
Sjáiði til.. þegar ég er bullur þá lít ég svona út!!
ekki snoturt neitt, sjúsk sjúsk sjúsk.(þósvo að ég sé búnað raka mig frá því að þessi mynd var tekin)
En í öðrum fréttum má meðal annars minnast á LOTR the two towers sem ég fór að sjá í gær með Gretu Hnetu (sem er bestasta vinkona í heimi, hún gaf mér geggjað flottan hring í jólagjöf). Af myndinni er það að frétta að hún er æðislegagóð.
hún er æði, Æði ÆÐI!!... jafnvel saxófónn....
og ég ætla að ráðleggja öllum að sjá hana strax, í gær, í fyrra!!! sjáið hana sem fyrst, því hún er stök snilld, sem ég get ekki sagt frá í svo og svo mörgum orðum því þrátt fyrir guðdómleika minn og mikla orðsnilld þá er ég eftir allt bara ekki fær um að lýsa þessari mynd í eini færslu né nokkurntíman í riti, því eins og þið vitið þá er ein mynd meira en 1000 orð oft og þessi er nú einir 180 mínútur eða svo, sinnum 60 sekúndur í hverr mínútu, sinnum að meðaltali 30 rammar á sekúndu, sem er hver virði þúsund orða, þar af leiðandi 180X60X30X1000 = 324.000.000 orð, eða ríflega þrjúhundruð tuttugu og fjórar milljónir orða, og ég get það ekki á örfáum dögum, og svo er líka hljóð í myndinni.
farðu að sjá hana lesandi góður, farðu núna....
shoo..
farðu...
afhverju ertu ennþá að lesa þetta...
... sko við erum með þannig samband hérna ég og þú, lesandi minn, að þú átt að hlýða mér og mínu kalli og ég segi
farðu frá tölvunni og farðu í bíó og að sjá þessa mynd
takk.

